Örlagadagurinn...

Jæja, frábær helgi afstaðin. Brúðkaup Guðmundar og Bjarkeyjar var alveg yndislegt og fallegt. Mikil tónlist eins og við var að búast. Þau voru alveg einstaklega falleg brúðhjón og sérsaumaði kjóllinn hennar ákaflega fallegur svo og litlu krakkarnir, járnbrá, Ragnheiður og Þórður líka í sérsaumuðum fötum og þær voru með vængi..voða krúttlegt. ... Eina sem skyggði á fyrir mig er að ég er algerlega búin að missa heyrnina á öðru eyranu og svo glimur bara hávaði í hinu. Það varð til þess að ég treysti mér ekki til að halda smá ræðustúf sem ég var þó búin að undirbúa.

Ég átti afmæli í gær, ég átti afmæli í gær ég átti afmæli í gææææææææær, ég átti afmæli í gær..jú hú

og það var auðvita mjög gaman. Það eru sko ekki allir eins heppnir og ég að fá að eldast, maður þakkar bara fyrir hvert ár sem á mann skellur.  ójá .. Bræður mínir og fjölskyldur heimsóttu mig og svo mamma, og Ólöf vinkona, Tengdaforeldrarnir og Gunna svilkona komu svo í gærkvöldi.

Agnes mágkona mín og Óli þröstur voru einlæg og flott í þættinum Örlagadagurinn hjá Sirrý í gærkvöldi og er ég mjög stolt af þeim að koma svo til dyranna eins og þau eru klædd. Frábært.

Ég veit að það það ekki auðvelt að tala um vandamálin (verkefnin) við hvern sem er, hvað þá alþjóð og alltaf svo margir tilbúnir að dæma  mann og annan án þess að vita neitt í sinn haus. Hef upplifað það á eigin skinni nokkrum sinnum.

En nú er ég farin í sumarfríið langþráða, fer suður nú á eftir með Ólöfu og Barða, Konni fór fyrir allar aldir í morgun, en ég nennti ekki með honum. Fer með Ólöfu á kínverkst nudd á fimmtudag en hún á afmæli þá og gefur mér nuddið í afmælisgjöf, svo það verður örugglega æðislegt á okkur með kínverjunum, er að vona að þetta séu litlir karlar sem nudda okkur...hehehe..Bara skemmtilegheit framundan...

bless í bili


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband