Lena Margrét 20 ára..

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún LENA MARGRÉT.. Hún er tvítug í dag..

Lena gullgella 

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ELSKU STELPAN WizardOKKAR. MEGIR ÞÚ EIGA GÓÐAN DAG.Wizard

20 ár liðin í dag síðan örverpið skaust í heiminn. Það tók ekki langan tíma að fæða hana. Ég sendi pabba hennar að kaupa lakkrís handa mér og á meðan fæddist hún. Ljósan var ekki einu sinni inni hjá mér, en ég náði að hringja bjöllu, svo hún kom flótlega, en þá var Lena komin í heiminn,  ég komst aldrei inn á fæðingarherbergið, svo við vorum bara tvær einar að brasa í þessari fæðingu. Síðan hefur verið sami asinn á henni, alltaf að flýta sér... Blessunin....Hefur farið nokkrum sinnum fram úr sjálfri sér á þessum 20 árum. Og við sem stöndum henni næst, höfum  ekki alltaf getað haldið í við hana.

En í dag er ráðgert að halda afmælisveislu, og svo aftur á morgun, þá verður komin bræla á miðum og Konni og Sig. Óli heima. Skemmtilegra að þeir feðgar séu heima.

Hins vegar var ég ásamt bræðrum, mágkonum og mömmu í afmælisveislu hjá fimmtugu frænku minni henni Jónínu í gærkvöldi, það var mjög ljúft og skemmtilegt. Þau eru nú svo skemmtilegt fólk og gaman að koma til þeirra..Takk fyrir okkur frænka mín.

Gott í dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með daginn Lena mín og að sjálfögðu þið foreldrar,Sigga, Konni Megi dagurinn verða mjög ljúfur og skemmtilegur ég veit að veislurnar verða hverri annari betri.

Stórfrænkan (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 10:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband