Bla bla bla:)

Ég sé að fólk er að kíkja hérna inn af og til .. Tékka hvort kerlan hafi eitthvað að segja þessa dagana. Alveg ótrúlegt hversu löt ég er við það þó ég ætli alltaf að taka á þessu og blogga reglulega.

7. des. páraði ég hér síðast, verð að viðurkenna að þegar lífið gengur ekki sinn vanagang og erfiðleikar steðja að manni þá langar mig ekkert að blogga. Það er svo skrítið að mér finnst ég vera að plata ef ég segi ekki frá öllu sem gengur á, svo ég hef tekið þann pól í hæðina að sleppa bara að blogga þegar þannig stendur á og miðað við fátækt færslna á s.l. ári 2009, var það ekkert sérstaklega gott fyrir mig og mína á stundum, þó einnig hafi risastórar hamingjustundir litið dagsins ljós það árið t.a.m. fæðing dóttursona okkar yndislegu, sá frábæri árangur Konna að verða fimmtugur, og allt hitt sem ég man ekki í augnablikinuSmile

Sko,  málið er það að mér finnst ég heldur ekki hafa leyfi til að segja frá erfiðum verkefnum og vanlíðan annara en mínum eigin, þó þau snerti mig auðvita djúpt og mikið þegar fólkið mitt á í hlut því ég sveiflast upp og niður með fjölskyldunni, því hún er það dýrmætasta sem maður á. Þannig er það nú.

2010 verður bara frábært ár, er viss um það og ég mun blogga mikið mikið, svo mikið að mbl mun loka á mig vegna plássfrekju.

Annars er bara allt gott að frétta, Við gamli erum að mála hjá okkur og laga eitt og annað sem átti að gera í des, en geðslag okkar leyfði ekki þar sem ég vil aldrei gera neitt sem mig langar ekki til ef ég þarf þess ekki nauðsynlega svo öllu var sleppt og jólin haldin í friði og þokkalegri ró, nutum bara kyrrðarinnar og vorum ekki með nein læti.
Okkur tókst að eiga 30 ára brúðkaupsafmæli 28. des. og hlökkum við til að hefja næsta áratuginn saman þar sem við höldum því fram að við verðum alltaf betri og betri, en við erum svo sem ekki að spyrja aðra hvað þeim finnist um það (sko hvort við verðum betri og betri með árunum, nóg að hafa okkar skoðun á þvíSmile)
Ætla að eiga frábæra helgi, fara á Ak á eftir og sækja nýtt sófasett í stofuna mína og gera voða fínt þar, vonandi að skápurinn í forstofuna komi í dag, búin að bíða og bíða í viku eftir honum,.. engin kreppa á þessum bæ.. enda kom ekkert góðæri hingað heldur svo við erum bara góðSmile
Góða helgi

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gott að lesa bloggið þitt eins og alltaf

Eigðu virkilega góða helgi elsku vinkonufrænka mín,með þínum kæra og slakið þið "gamla settið" á í nýja settinu

STórfrænkan (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 13:27

2 identicon

Frábæra frænka mín, hlakka til að lesa urmul blogga á árinu!

Jóna Lísa Þorsteinsdóttir (IP-tala skráð) 16.1.2010 kl. 09:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband