Sjómannadagur...

Ákvað að setja hér inn ræðuna sem ég futti í kirkjunni í morgunn á sjómannadag. 

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ALLIR MÍNIR MENN...SJÓMENN.. 

Það er sjómannadagur, og pabbi er heima. Hann er alltaf heima á sjómannadaginn.   veðrið er fallegt, sól og heiður himin og ég er komin í sparifötin og sportsokka. Þvegin og strokin. Gummi og Þórður bróðir eru heppnir, þeir eru í síðbuxum því Þó að sólin skíni er svöl norðangola sem strýkur bera fótleggi. Skrúðganga með pabba frá bryggjunni að kirkju, í sjómannadagsmessu.  Þetta er líka eini dagurinn sem hægt er að fara með honum á bryggjuna, án þess að það þurfi að stoppa og tala við alla karlanna sem verða á vegi okkar til  að ræða veðrið, aflabrögð, daginn og veginn. Hann verður að ganga með okkur í skrúðgöngunni. Leiðin niður á sjósand á sunnudögum í gamla daga gat tekið langan tíma með pabba. 

Eftir hefðbundna messu er drukknaðra sjómanna minnst við minnisvarðann. Það hefur mér alltaf þótt vera einstaklega falleg og tilfinningaþrunginn athöfn. Þar er nafn móðurbróður míns, Þórðar sem fórst árið 1950 Í áranna rás hafa fleiri nöfn bæst í hópinn, nöfn manna sem við þekktum og minnumst í dag. Menn sem lögðu allt í sölurnar til að færa björg í bú, menn sem gerðu sjómennskuna af ævistarfi.  

Hátíðarbragur er yfir bænum okkar, fánar blakta hvarvetna við hún. Mamma fer ekki með okkur í messu, hún er heima að elda stórsteik í tilefni dagsins, líklega lambahrygg með brúnuðum kartöflum, grænum baunum og rauðkáli. Eftir matinn er kappróður og síðan hefst dagskrá við sundlaugina, stakkasund, björgunarsund, jafnvel reiptog og fleiri leikir. Þar er barist um Alferðs-stöngina. Seinna um daginn er fótboltaleikur milli sjómanna og landmanna. Og auðvita held ég með sjómönnunum. Pabbi er að keppa í fótbolta, einhversstaðar í bænum tókst að fá lánaða fótboltaskó nr. 45. Mér finnst pabbi minn bestur. Kaffisala slysavarnardeildar kvenna og dansleikur fyrir fullorðna fólkið eru fastir liðir.  Alfreðsstöngin er komin heim í stofu þegar ég vakna daginn eftir, Alli móðurbróðir minn biður mömmu að geyma stöngina hjá sér. Gaman að segja frá því að bræður mínir, þeir Þórður og Arnar hafa einnig fengið að varðveita stöngina, og svo Sigurður Óli sonur minn, þegar hann var 16 ára. 

Þegar ég var lítil, var tvennt í lífinu sem ég ætlaði ekki að gera, ég ætlaði aldrei að reykja og ekki giftast sjómanni. Mín börn áttu að hafa sinn pabba heima.. alltaf. Hún var oft löng, biðin eftir að pabbi kæmi í land, og stoppaði þá nokkra daga. Þá voru líka margir sunnudagar í röð, veislumatur, og alltaf reynt að gera eitthvað skemmtilegt tíminn notaður til hins ítrasta og  andrúmsloftið var einhvern vegin öðruvísi. Ekki skemmdi það heldur að maður gat dobblað pabba um eitthvað sem mann langaði í en þorði ekki að spyrja mömmu um. 

 Ég man að einu sinni þegar pabbi var að fá sér kaffi í eldhúsinu áður en hann færi um borð, skriðum við Gummi með snæri undir borðið og bundum fætur hans fastar við stólinn. Það dugði ekki til, á sjóinn fór hann. 

Ég giftist sjómanni þegar ég var 18 ára og sonur minn er sjómaður. Ég byrjaði líka að reykja en það er nú önnur saga. 

Á unglingsárunum vann ég á H.Ó. Þá var smalað saman í róðarsveit í frystihúsinu. Eitt kvöldið erum við að æfa okkur, veðrið var svo fallegt að við ákváðum að róa út á kleifar í kaffi til Öbbu á Syðri Á, sem eins og allir vita vann á Frystihúsinu. Við vorum ekki komnar langt út fyrir hafnargarðinn þegar við áttuðum okkur á því að þetta var ekki góð hugmynd. slík var undiraldan og urðum við skíthræddar. Ólöf Garðars var svo hrædd að hún fór að kalla á mömmu sína..mamma….mamma…. Rósa Óskars sem var með okkur, sagði henni að steinhætta þessu… þú hefur þó mömmu þína hjá þér, en Sigga Hannesar var stýrimaður hjá okkur. 

Þetta var þó ekki eina sjóferðin mín, nokkrum sinnum fór ég með Willa afa á færi, og fannst alltaf gaman fyrst, en iðulega þurfti að fara með mig í land vegna sjóveiki. Ég er einnig svo fræg að hafa farið á Hrefnuveiðar, þegar ég var í tilhugalífinu með konna. Við fórum frá Árskógssandi um miðnætti og var mér sagt að fara í koju svo ég yrði síður sjóveik, sem og ég gerði. Ég vaknaði við það að skipstjórinn, kallaði á okkur að koma upp og halda í sporðinn á Hrefnunni meðan hann skyti hana. Ég þurrkaðist upp úr kojunni, og kallaði á strákana, en þeir hreyfðu sig ekki, vissu sem var að þannig veiðast ekki dýrin. Ég skammaðist mín svolítið lengi á eftir, að hafa ekki áttað mig strax á hvað þetta var vitlaust.   

Já…  mínar bestu, … og líka verstu.. minningar eru tengdar þessum degi Þær bestu úr barnæskunni, sem eru sveipaðar gleði, sól og hamingju. Það var kaldhæðni örlaganna að Pabbi minn, sem bjargaðist úr sjóslysi árið 1975, Þegar Kristbjörgin fórst, og  með henni mágur hans, Kristján Ásgeirsson skipstjóri, að hann pabbi og Gummi bróðir skildu látast í bílslysi kvöldið fyrir sjómannadag 4 árum síðar eða árið 1979… Það ár voru engin hátíðarhöld. 

Þó margt hafi breyst í gegnum árin í bænum okkar, félög og klúbbar lagt upp laupana eða lagst í dvala, getum verið mjög stolt af því, að hér í Ólafsfirði hefur sjómannadagurinn haldið sjarma sínum og hátíðleik í gegnum árin.  Hann er enn með sama hefðbundna sniðinu og þegar ég var að alast upp, en er orðin mun veglegri og meira í hann lagt en áður, þökk sé áhugasömum og duglegum sjómönnum. Þeir eru flestir hverjir þátttakendur á einn eða annan hátt, og leggja nótt við dag í að undirbúa helgina,  sem nú er orðin sannkölluð fjölskylduskemmtun, þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.

Í nágrannasveitarfélögum okkar eru hátíðarhöld nánast að leggjast af vegna þess að enginn fæst til að gera það sem gera þarf.

Sjómannadagurinn gegnir margvíslegu hlutverki í samfélaginu og á sér varla hliðstæðu í nokkru öðru þjóðfélagi. Því megum við aldrei gleyma að  þjóðfélag okkar sem nú á allra síðustu árum hefur tekið miklum breytingum, var byggt upp á einni atvinnugrein… sjávarútveginum,… enda eru sjómenn og úterðamenn  stoltir af starfi sínu, og mega svo sannarlega vera það.  Í öllu tali um stóriðjur, banka og hátækniðnað,  skulum við aldrei gleyma  því.

Árið 1939 efndi sjómannadagsráð til samkeppni um ljóð og lag fyrir sjómannadaginn. Magnús Stefánsson hlaut 1 verðlaun fyrir ljóð sitt Hrafnistumenn, við lag eftir Emil Thoroddsen. Þetta ljóð og lag er nú einkennissöngur sjómannadagsins.


Íslands Hrafnistumenn
lifðu tímamót tvenn
þó að töf yrði á framsóknarleið.
Eftir súðbyrðings för
kom hinn seglprúði knörr
eftir seglskipið vélknúin skeið.
En þótt tækjum sé breytt
þá er eðlið samt eitt
eins og ætlunarverkið er sjómannsins beið.

 

Ég óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn.    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Sigga mín.

Vona að þið hafið átt góðan sjómannadag og ræðan er góð til lestrar. Örygglega verið gaman að hlusta.  En á okkar heimili var skírt og og hjónaleysin Stefán og Elín létu pússa sig saman öllum að óvörum nema foreldrum. Þetta var falleg athöfn sem fór fram á stofugólfinu hjá okkur. Ég átti nú ekki von á því að eiga eftir að hafa aðra brúðkaupsveislu hjá okkur þar sem bara piltar eru á heimilinu . En lífið er óútreiknanlegt og skemmtilegt. Það er mynd af þeim á þessari slóð.   www.flickr.com/photos/sindrisvan/  Kv Gunna.

Guðrún María (IP-tala skráð) 6.6.2007 kl. 19:32

2 identicon

Ja hérna hér.. til hamingju með skírnina og brúðkaupið.  Flott hjá þeim að gifta sig. Það þarf ekki alltaf að vera milljóndollara brúðkaup. Munaði minnstu að Siggi og Vala giftu sig á stofugólfinu hér 5. maí. voru einum degi of sein að láta sér detta það í hug, pappírslega séð...Enn og aftur til hamingju

Kv. Sigga

Sigga (IP-tala skráð) 6.6.2007 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband