Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Ég og sófinn..

í gær fór ég á ljósmyndasýninguna hjá Gísla og mikið svakalega voru flottar myndirnar. Nánast allar héðan úr firðinum. vá vá. Skora á alla að fara og skoða sýninguna.Smile Til hamingju Gísli Smile

Hins vegar gerðum við þau mistök að fara aðeins heim, því það var ekki búið að opna Tjarnarborg, neðri sal, fyrir Blúsinn. Það er skemmst frá því að segja að ég lamaðist í sófanum og fór ekki niðureftir aftur.. Voða aumingi.. Skil ekki hvað ég er punkteruð þessa dagana. Fékk svo að heyra strax í morgunn í vinnunni hversu gaman var...Wink Þetta gerist allt of oft hjá Sigríði.Frown

Lena er á sjó með Sigga ofl. konni fer líklega ekki meira á sjó fyrr en nýji báturinn kemur, en hann fer suður að vinna á mánudag. Ætla að bjóða Ellen að fara með afa sínum, en á ekki endilega von á að hún þiggi það. Kemur í ljós.

En ég ætla að eiga góða helgi með bóndanum sem er í fríi og málningarrúllunni Freyju, skreppa á blúsinn á kvöldin, (ég skal hundur heita og gelta á fjórum fótum í 3 daga ef ég klikka aftur)..

Akureyri í dag með Ólöfu vinkonu, það verður örugglega skemmtilegt. Hafið það gott í góða veðrinu.

nóg að sinni..


Blueshátíð um helgina.....

Blueshátiðin hefst í kvöld með tónleikunum: köllum þau heim. Þar munu heimsfrægir Ólafsfirðingar skemmta okkur með söng og fleiru. Alveg frábær þessi blueshátíð sem haldin er ár hvert og búin að festa sig rækilega í sessi. Ég ætla að skella mér í kvöld og á laugardagskvöldið, veit ekki með föstudaginn. ætla að sjá til.....Smile

Gísli kristinsson (Lólóar) bekkjarbróðir minn, mun svo opna ljósmyndasýningu í Tjarnarborg í kvöld, og ætla ég að þar verði aragrúi fallegra landslagsmynda héðan úr firðinum og víðar. Vel til fundið hjá Gísla að halda þessa sýningu, sem ég held að sé hans fyrsta en örugglega ekki sú síðasta. Hann er orðinn heimsfrægur á netinu fyrir myndir sínar. Ég ætla sko að mæta þar líka.. ekki spurningSmile

Spurning hvenær Guðný vinnuvinkonufrænka mín heldur sýningu, við eigum fullt af frábærum ljósmyndurum hér í bæ, og hún er ein af þeim..ójá.. Svo það verður bara nóg að gera þessa helgina eins og venjulega. Ætla á AK á laugardag að mála með Freyju seinni umferð á húsið... OG FREYJA ÆTLAR AÐ SAUMA SUMAR-BRÚÐKAUPSFÖT Á MÖMMU SÍNA EF HÚN VERÐUR DUGLEG AÐ MÁLA.....  Það segir sig sjálft að ég verð að vera dugleg með rúlluna. 

Líklega á AK á morgunn líka með Ólöfu vinkonu minni í brúðkaupsborðaleit..Skemmtilegt.... Vonandi heimsækjum við Halldóru hálfsystur í leiðinni..Ætli hún eigi ekki köku handa okkur... er viss um það....hehe.

Guðmundur Fannar bróðursonur minn og Bjarkey eru að gifta sig 07.07.07. og svo Sigurður Garðar Barðason og Unnur 14.07.07. Svo maður verður nú að vera í sparigallanum í júlí, svo ég tali nú ekki um öll afmælin.. t.d. AÐAL.. ég og Ólöf eigum afmæli 8. og 12. Sigurður Óli og Harpa Hlín 14 og 13. Fyrri Brúðhjónin 10 og ég held 5. Nanna og Þura vinkonur 2. og 11. Þórgunnur mágkona 29. og svo mætti lengi telja..................................................Ragnheiður Kara er 23. held ég... o.s.frv.Wizard

Ellen fór til pabba síns og fjölsk. í gær og unir sér vel með litlu systkynum sínum, ójá.. 

Whistling Skemmtilegasti mánuðurinn minn er:::::::::::::::::::::JÚLÍ.


Ég verð svo reið.....

Oh.. Ég er farin að hlakka svo til að fara í sumarfrí. Alveg dæmalaust hvað það verður stundum leiðinlegt í vinnunni þega sumarið er komið og mann langar bara að vera úti að leika sér. Ég er sem sagt að reyna að þreyja þorrann til 10. júlí. Ég hef undanfarin ár verið að taka viku í júní 2-3 í júlí og eina í Ágúst, en nú ætla ég að taka mánuð í einu og hætta þessu mjatli með fríið mitt. svo hef ég geymt 1-2 vikur til vetrarins. en nú verður það bara 1 vika í vetrarfríið.Smile

Annars hef ég lært það á minni tæplega 46 ára ævi að vera ekki að gera plön fram í tímann. þau standast yfirleitt aldrei, ekki hjá mér. Taka bara einn dag í einu og klára hann.

Við mamma ætlum suður í næstu viku, að vera við útför Einars hennar Ingu Jónu frænku minnar (Hún er elsta barn Siggu systir pabba), en hann lést sl. föstud. langt um aldur fram. Því er svo mikilvægt að gera hvern dag eins góðan og maður getur og vera sáttur þegar maður leggst í rúmið á kvöldin. því maður veit ekki hvort maður rís úr rekkju á morgunn.

Ég var að lesa minningargrein föður um dóttur sína í mogganum í gær, Susie Rut Einarsdóttir lést á LHS vegna misnotkunar á morfíni, en hún var fíkill, hafði verið edrú í 4 ár. Búin að vera umfjöllun um hana í fjölmiðlum undanfarna daga. Þessi grein er bara skyldulesning fyrir alla, finnst mér. Mikil og þörf skrif föðurins um það hvernig kerfið og þjóðfélagið allt bregst unga fólkinu okkar sem lendir í klóm áfengis og eiturlyfja og öllum þeim viðbjóði sem því fylgir. Ég verð svo reið inni í mér þegar ég les um lát ungs fólks vegna fíknarinnar. Hvar eru stóru karlarnir sem standa að og fjármagna innflutninginn og neðanjarðarhagkerfið sem blómstar hér á landi. Nei við erum handónýt í þessum málum hér á landi, vegna þess að það vantar áhuga hjá stjórnvöldum og hinum almenna borgara að leggjast á eitt og framkvæma. Það heyrðist ekki múkk, ekki einu sinni nú fyrir kosningarnar í vor, þó hafa pólítíkusarnir yfirleitt lofað að gera eitthvað róttækt fyrir kosningar, en nú .. ekkert... stórt núll.. við erum orðin svo sofandi og samdauna ástandinu.  Það verður bara að hafa það þó einn og einn deyi....ÖMURLEGT...

Einu sinni hringdum við hjón á lögregluna og báðum um vernd, þar sem við höfðum rökstuddan grun fyrir þvi að dópsalar væru á leið heim til okkar að lúskra á okkur. Þeir voru vopnaðir hafnarboltakylfu og haglabyssu. Lögreglan gat því miður ekkert gert, fyrr en þeir væru búnir að koma og berja okkur eða þaðan af verra.. PÆLIÐ Í ÞVÍ...jú þeir gætu keyrt fram hjá húsinu.. þannig var nú það...

í aðra og skemmtilegri sálma. Harpa Hlín kom nú loks og gisti hjá ömmu um síðustu helgi og áttum við gæðastundir saman. Hún er svo fyndin stelpa og talar orðið svo mikið, enda að verða 3ja hnátan. Við fórum svo á Ak á sunnudag að hjálpa Freyju og Herði að mála húsið, sem glöggir hafa líklega séð að er ekki lengur blátt, heldur hvítt. Seinni umferðin er eftir og verður vonandi máluð um komandi helgi. Lilja, Finnbogi og Munda voru búin að vera með þeim alla helgina í málningarvinnu, ekki ónýtt að hafa svona fólk í kringum sig Freyja og Hörður!!

Ellen Helga mætti svo á svæðið á sunnudag og ætlar að vera einhverja daga,  henni leiðist nú ekki í firðinum fagra og er alveg sama þó amma sé að vinna, hún fer bara út að leika við vinina þar til amman kemur í kaffi og mat (Ég reyni nú að fylgjast með ferðum hennar). Það er bara vandamál að fá hana inn á kvöldin.Smile

Fórum í skógahögg s.l. föstud. við konni og losuðum 8 hlöss af greinum og trjám, svo garðurinn er allsber núna og voða hallærislegur, en við urðum að gera þetta. Grenitréin voru orðin svo ljót og brún og uxu hvort á annað svo þetta verður gott þegar búið er að laga undir þeim, ná í mold og sá grasfræjum í sárin sem eru ansi stór. Fórum með öll grenihlössin niður á eyri til Þórðar að beiðni Hófýar, hún ætlar að nota þetta í tunnubrennslu fyrir leirinn. Það er fjall á eyrinni núna. Held að hún þurfi ekki að spá í eldivið næstu árin..hehehGrin

Gott í dag.


Sól og sæla.........

Ég fór til tannlæknis í vikunni. Meðan ég beið á biðstofunni fór ég að fletta vikunni frá því í mars og rakst þar á strjörnuspár sem ég renndi yfir. Spár okkar Konna voru afskaplega bjartar og fínar, ekkert nema sól og sæla framundan hjá krabba og ljóni, en það sem mér þótti nú skemmtilegast var að happadagur konna var 19. mars, sem er auðvita fæðingardagur konna Þórs junior.. Minn var 15. mars sem er fæðingardagur Örnu Bjarkar uppáhaldsfrænku minnar.. ..Smile Skemmtilegt....Smile

Ég fór með Runna í skoðun í gær og viti menn..........þeir settu aftur grænan endurskoðunarmiða á greyið..Okkur láðist að tékka á ljósum og vantaði einhverjar perur.. þarf að skipta um spindil, hvað svo sem það er nú.... Maggi á Múlatindi var búinn að fara yfir kaggann fyrir mig og hélt að allt væri í góðu standi... Svona er nú það...Smile Set broskall á bílinn áður en ég fer með hann aftur.

Veðrið í dag er guðdómlegt myljandi hiti og sól, alveg eins og maður vill hafa það..Skáphurðirnar hrannast upp í eldhúsinu og er nú nánast allt komið nema það sem þarf að breyta f. ísskápinn. þvílíkt flott orðið..Freyja kom í gær á nýja flotta bílnum sínum. Hann er gegg. flottur eins og sagt er og voða tæknilegur. Hún er að sauma á konu hér í firðinum og kom í mátunarferð og mat til mömmu í leiðinni.Halo 

Sigurður Óli mokfiskar dag eftir dag, gaman hvað gengur vel hjá stráknum, og hvað hann hefur mikinn áhuga á vinnunni sinni. Konni heima núna er fer á sjó í kvöld, ef Siggi leyfir honum að koma um borð, en Konni á að vera byrjaður á nýja bátnum en það tefst eitthvað....

Gott í bili.


Afmælisbarn dagsins er............

HÚN Á AFMÆLI Í DAG, HÚN Á AFMÆLI Í DAG, HÚN Á AFMÆLI HÚN ELLEN HELGA,HÚN Á AFMÆI Í DAG. HÚN ER 7 ÁRA Í DAG, HÚN ER 7 ÁRA Í DAG, HÚN ER 7 ÁRA HÚN ELLEN, HÚN Á AFMÆLI Í DAG.

WizardWizardWizard HAMINGJUÓSKIR TIL ÞÍN FRÁ ÖMMU OG AFA ÓLÓ OG ÖLLUM HINUMWizardWizardWizard

KNÚS OG KOSSAR FRÁ OKKUR, HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG Á SUNNUD. ELSKUM ÞIG Í TÆTLUR..

Já eins og sést hér fyrir ofan, á Ella sprella afmæli í dag og verður líklega mikið stuð og húllumhæ í dag og á laugardaginn, þegar vinkonan heldur afmælisveislu...Eigðu góðan dag vinkona pjönk.

Annars allt í gúddý á Hlíðarveginum, Uppvaskarinn kominn í gagnið mér til mikillar ánægju, svo nú hef ég ekki lengur neina afsökun fyrir að baka ekki og elda stóruppvaskmat..hehe.. Freyja og Hörður fundu draumabílinn í R-vík og svarta Hondu eitthvað.. Orri og afi fóru að veiða í gærkvöldi og fengu 5 fiska, allt er flakað og fryst því okkar maður ætlar sko með aflann til mömmu sinnar í dag.. 

Í dag ætla ég með Runna (bílinn minn) í skoðun. Hann er með endurskoðun síðan í janúar út af smotterýi, (bilaður stýrisendi) og satt að segja skil ég ekki í því hvers vegna ég hef ekki verið stoppuð á honum, það er nú komin seinnhluti júní.. En loks lét ég laga greyið og vonandi verður komið 08 á hann í kvöld. Ég hef svosem ekki verið mikið á ferðinni á honum, nema í vinnu, rækt og heim. Farið frekar á fína vinnubílnum Konna í skreppitúra til Akureyrar.. ójá..

Gott í dag.

 


Orri mættur á svæðið..

Elsta barnabarnið Sigurður Orri er í heimsókn...Smile Afi konni sótti hann í gær, og voru þeir að veiða og brasa í gær.  Þeir eru góðir saman, og Konni duglegur að fara með hannn hingað og þangað. Hann spurði mig hvort ég gæti nokkuð eldað makkarónugraut, uppáhaldið hjá ömmu Siggu...Smile ég hélt það nú og reikna með að hafa hann í eftirmat þá daga sem hann verður hjá okkur. LoL

Hann skellti sér svo suður með gamla kl 5 í morgunn, en Konni er í enn einum skottúrnum að reka á  eftir bátasmíðinni og ákveða hvar hvað á að vera og svoleiðis. Þeir ætluðu svo að koma Ellen á óvart með heimsókn, og veit ég að sú stutta verður frá sér af gleði, þau eru svo ótrúleg saman og skín af þeim væntumþykjan til hvors annars. .. Þeir fóru líka með smá pakka til dömunnar sem á afmæli á morgunn og veit ég að henni þykir það ekki leiðinlegt.Wink

Freyja og Hörður eru líka með þeim, eru að skipta á bíl og þá er gott að skreppa í borg óttans og skoða úrvalið..........

Í annað.. ótrúlegt að lesa að fulltrúar samfylkingarinnar í borgarstjórn skyldu sitja hjá við val á borgarlistamanni. Þetta er svo leiðinlegt gagnvart listamanninum, þau hefðu getað látið bóka leiðindi sín, en samt greitt atkvæði með valinu.. Þetta eru greinilega fýlupokar sem þarna eru á ferð.Frown

Ég er farin að hlakka til að fá vinkonur mínar heim  aftur, Guðný frá Rhodos, búin að vera að leika við karlinn sinn dögum saman, og við ekki fengið neinar kökur á föstudögum hér í vinnunni.. Ólöf er heima á Spáni, að leika við Barða og bræður hans. Bannað að allir fari út í einu.. Þær eiga eitt mjög sameiginlegt.. Karlarnir þeirra eru duglegri og betri í eldhúsinu en þær.. Held að þær þurfi aldrei að elda...hehe.. Þori að skrifa þetta af því að þær liggja ekki á netinu í útlöndum og fara vonandi ekki að skoða gamlar færslur þegar þær koma heim.. En farið að drífa ykkur heim elskurnar mínar í þokuslæðinginn... nei nei djók.. Komið með sól og hita með ykkru plís..plís..

nóg að sinni


Þjóðhátíð að baki

Þjóðhátíðarhelgin liðin í ró og spekt.. Eva frænka mín ..75  ára  í gær og fór ég í svaka fína veislu hjá henni. TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ EVA MÍN.... Alltaf gaman að koma saman og borða góðar kökur, ég er mjög liðtæk í svoleiðis, Evudæturnar eru líka svo skemmtilegar og svo auðvita afmælisbarnið.Wizard

Annars var helgin bara róleg hjá mér, konni á sjó.. Hann slær ekki slöku við frekar en fyrri daginn maðurinn sá. Bílinn minn er á verkstæði svo ég komst hvorki lönd né strönd og var það bara gott, hefði annars verið eitthvað á ferðinni til AK . Málaði einn vegg inni og annan úti, en ekki með sömu málningunni, nei nei.

Fórum suður í síðustu viku í skot-túr, kíkti á Ellen og fór í IKEA að ná í lausa enda í innréttinguna, það var fjör,en maður var nú orðin frekar þreyttur þegar heim kom. Konni kom heim í gærkvöldi, og fer suður á morgunn, en ég ætla ekki með núna, náði líka að kaupa mér eina skó, svo ég er í góðum málum.hehe.

Opið hús eða konukvöld í búðinni á föstudagskvöldið, veittur góður afsláttur á fatnaði og skóm,hvítt og rautt vín og léttar veitingar. Fullt af konum mættu og gerðu góð kaup í ágætis félagsskap. Það þarf ekki mikið til að gleðja okkur konurnar og vel til fundið hjá þeim í búðinni að brjóta upp hið hefðbundna....skemmtilegt..

Verð að minnast á leikinn í gærkveldi, við Serbana.. þvílík spenna, ég var alveg að fara yfirum, argandi og gargandi, hoppandi og hendandi mér niður í sófann til skiptist.. Þeir eru góðir strákarnir okkar, og láta mann vera í spennu út allan leikinn.. Áfram Ísland.. þvílik stemma í höllinni..vává

Bless í bili.


Þokumóða..

Jæja, helgin liðin og allt að komast í eðlilegt horf á heimilinu. Það gekk flest eftir sem ég var búin að ákveða í síðasta bloggi, nema ekki náðist að tengja uppvaskarann áður en Konni fór að sjó á laugardagskvöld. Ég leyfði honum að gera ekki neitt alveg frá 9- 11 um kvöldið, eða þangað til hann fór, held að hann hafi bara verið fegin að komast á sjóinn og hvíla sig...hehehehe..Annars að verða mjög fínt, en nóg eftir samt.Smile

Lena fór á sjóinn með gamla og sagði hann mér, það sem við svo sem vissum að hún væri vargur í vinnu og gæfi strákunum lítið eftir. Þau voru með 10 tonn í fyrsta túrnum hennar,svo ekki er hún fiskifæla. Hún verður í afleysingum í sumar ef Guð lofar og lýst henni bara vel á.

Hörður Elís tengdasonurinn er kominn heim frá Mónakó, þar sem hann var með siglingalandsliðið á smáþóðaleikunum, en hann er þjálfari þeirra. Var voða gaman og gekk ágætlega, segir Freyja mér, en ég hef ekki heyrt í honum sjálfum.

komið var að máli við mig frá menningamálanefnd slökkvuliðsins, (en þeir sjá um 17. júní) og beðin um að vera FJALLKONA .... Ég þakkaði þeim vel fyrir að biðja mig, en afþakkaði boðið, sagðist nú ekki vilja vera ANNA ALLSSTAÐAR, léti sjómannadaginn duga.. Undecided

Rifjaðist upp fyrir mér þegar Bjarni fyrrverandi bæjarstjóri kom til mín í blómabúðina um árið, sömu erinda,  nema hann var svo fyndinn og bað mig að vera TRÖLLKONA á 17tjánda.. Afþakkaði þá líka, kannski hef ég móðgast svo við hann inn við beinið, kannski hrædd um að komast ekki í gallan .. nei.. eh he fjallkonubúininginn sem er mjög flottur og skrautlegur. Ég klæddi Þórgunni mágkonu mína í herlegheitin fyrir 4 árum er hún ávarpaði lýðinn á þjóðhátíðardaginn, og var þetta tómt vesen og gekk illa að fá höfuðbúnaðinn til að sitja á sínum stað, en það tókst nú á endanum.

Konni þarf að skjótast suður út af bátnum nú næstu daga og ég er nú bara að spá í að skella mér með honum..Þarf í IKEA að skipta á hurð f. ísskápinn og ná í grindur í búrskápinn, og skila slatta af höldum..keypti 48 stk höldur.. voru óvart 2. í hverri pakningu, Mér fannst svo skrítið að það voru merktar 12 pakningar á blaðið sem ég fór eftir og lét þau orð falla að teiknarinn hlyti að hafa verið í annarlegu ástandi þegar hann gerði þetta, svo ég keypti 24. Áttaði mig þegar ég kom heim.. betra er seint en aldrei.

Blessuð sumarþokan er mætt í fjörðinn og reyni ég að láta það ekki pirra mig..Tounge Hún fer og kemur, fer og kemur. Setti inn nokkrar myndir frá apríl, kannske bæti ég maí við í kvöld.

bless í bili


Enn einn föstudagur...

Enn kominn föstudagur.. Þetta er ekki eðlilegt hvað tíminn líður hratt.... Það hefur glatt mitt litla hjarta óseigjanlega, öll þau góðu viðbrögð sem ég hef fengið vegna sjómannadagsræðunnar í kirkjunni. Kirkjugestir voru afskaplega ánægðir og snortnir, fannst ég þvílíka hetjan og þar fram eftir götunum, sem ég er auðvita. Fólk er enn að stoppa mig  lýsa ánægju sinni... Allir virtust geta samsamað sig við minningar mínar.. Ánægjulegt..Smile.

Eldhúsið mitt er að verða geðveikt flott.. Vá--vá . Konni kom heim á miðvikud.- kvöld og í gær fóru borðplöturnar á og í morgunn flestar skáphurðir og seinna í dag fæ ég líklega ELDAVÉL, UPPVÖSKUNARVÉL OG VASKINN Í GANG.  (Fékk ísskápinn og ölbylgjuna í gang áður en konni fór á sjó s.l. mánud.) Þá verður sko kátt í höllinni get ég sagt ykkur.. Ég mun líklega skrúfa höldurnar á í kvöld. Lena sló lóðina í gær ..voða dugleg..LoL

Ég lagðist í rúmið á sunnudagskvöld, og fór ekki í vinnu fyrr en í gær. Tókst það sem ég stefndi að að klára sjómannadaginn Álfana og allt hitt, en sprakk svo á limminu og hélt að hausinn mér myndi springa um kvöldið. Kvef og fullar ennisholur..þrýstingurinn var ömurlegur. En nú er kórinn komin í sumarfrí fram í lok ágúst, nema eitthvað komi uppá, og það gerðist í morgunn að gamall Ólafsfirðingur lést, svo væntanlega verður jarðaför um næstu helgi.. svona er nú lífið einu sinni..Halo

Krakkarnir komu í heimsókn um síðustu helgi og við grilluðum í góða veðrinu, Fórum í sjómannakaffi til Arnars og Þórgunnar, í hoppukastalann með Hörpu sem skemmti sér konunglega, búið að vera æðislegt veður undanfarna daga. Ellen hringdi, var að fá skólaeinkunnirnar sem voru mjöööög flottar, TiL HAMINGJU MEÐ ÞAÐ DÚLLAN MÍN.. Vildi nú líka koma norður, sagði að það væri ógeðslegt veður hjá sér..rok og rigning...Ætla nú að efna loforðið mitt við Hörpu Hlín um að koma og gista þegar eldhúsið er orðið klárt. Hún átti ekki til eitt einasta orð, þegar hún sá að amma átti enga eldavél, og engan vask..hvurslags er þetta eiginlegaBlush

Fundum geitungabú hjá okkur í gærkvöldi, ætlum að manna okkur upp í að fjarlægja það í kvöld..

nóg um það..


Sjómannadagur...

Ákvað að setja hér inn ræðuna sem ég futti í kirkjunni í morgunn á sjómannadag. 

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ALLIR MÍNIR MENN...SJÓMENN.. 

Það er sjómannadagur, og pabbi er heima. Hann er alltaf heima á sjómannadaginn.   veðrið er fallegt, sól og heiður himin og ég er komin í sparifötin og sportsokka. Þvegin og strokin. Gummi og Þórður bróðir eru heppnir, þeir eru í síðbuxum því Þó að sólin skíni er svöl norðangola sem strýkur bera fótleggi. Skrúðganga með pabba frá bryggjunni að kirkju, í sjómannadagsmessu.  Þetta er líka eini dagurinn sem hægt er að fara með honum á bryggjuna, án þess að það þurfi að stoppa og tala við alla karlanna sem verða á vegi okkar til  að ræða veðrið, aflabrögð, daginn og veginn. Hann verður að ganga með okkur í skrúðgöngunni. Leiðin niður á sjósand á sunnudögum í gamla daga gat tekið langan tíma með pabba. 

Eftir hefðbundna messu er drukknaðra sjómanna minnst við minnisvarðann. Það hefur mér alltaf þótt vera einstaklega falleg og tilfinningaþrunginn athöfn. Þar er nafn móðurbróður míns, Þórðar sem fórst árið 1950 Í áranna rás hafa fleiri nöfn bæst í hópinn, nöfn manna sem við þekktum og minnumst í dag. Menn sem lögðu allt í sölurnar til að færa björg í bú, menn sem gerðu sjómennskuna af ævistarfi.  

Hátíðarbragur er yfir bænum okkar, fánar blakta hvarvetna við hún. Mamma fer ekki með okkur í messu, hún er heima að elda stórsteik í tilefni dagsins, líklega lambahrygg með brúnuðum kartöflum, grænum baunum og rauðkáli. Eftir matinn er kappróður og síðan hefst dagskrá við sundlaugina, stakkasund, björgunarsund, jafnvel reiptog og fleiri leikir. Þar er barist um Alferðs-stöngina. Seinna um daginn er fótboltaleikur milli sjómanna og landmanna. Og auðvita held ég með sjómönnunum. Pabbi er að keppa í fótbolta, einhversstaðar í bænum tókst að fá lánaða fótboltaskó nr. 45. Mér finnst pabbi minn bestur. Kaffisala slysavarnardeildar kvenna og dansleikur fyrir fullorðna fólkið eru fastir liðir.  Alfreðsstöngin er komin heim í stofu þegar ég vakna daginn eftir, Alli móðurbróðir minn biður mömmu að geyma stöngina hjá sér. Gaman að segja frá því að bræður mínir, þeir Þórður og Arnar hafa einnig fengið að varðveita stöngina, og svo Sigurður Óli sonur minn, þegar hann var 16 ára. 

Þegar ég var lítil, var tvennt í lífinu sem ég ætlaði ekki að gera, ég ætlaði aldrei að reykja og ekki giftast sjómanni. Mín börn áttu að hafa sinn pabba heima.. alltaf. Hún var oft löng, biðin eftir að pabbi kæmi í land, og stoppaði þá nokkra daga. Þá voru líka margir sunnudagar í röð, veislumatur, og alltaf reynt að gera eitthvað skemmtilegt tíminn notaður til hins ítrasta og  andrúmsloftið var einhvern vegin öðruvísi. Ekki skemmdi það heldur að maður gat dobblað pabba um eitthvað sem mann langaði í en þorði ekki að spyrja mömmu um. 

 Ég man að einu sinni þegar pabbi var að fá sér kaffi í eldhúsinu áður en hann færi um borð, skriðum við Gummi með snæri undir borðið og bundum fætur hans fastar við stólinn. Það dugði ekki til, á sjóinn fór hann. 

Ég giftist sjómanni þegar ég var 18 ára og sonur minn er sjómaður. Ég byrjaði líka að reykja en það er nú önnur saga. 

Á unglingsárunum vann ég á H.Ó. Þá var smalað saman í róðarsveit í frystihúsinu. Eitt kvöldið erum við að æfa okkur, veðrið var svo fallegt að við ákváðum að róa út á kleifar í kaffi til Öbbu á Syðri Á, sem eins og allir vita vann á Frystihúsinu. Við vorum ekki komnar langt út fyrir hafnargarðinn þegar við áttuðum okkur á því að þetta var ekki góð hugmynd. slík var undiraldan og urðum við skíthræddar. Ólöf Garðars var svo hrædd að hún fór að kalla á mömmu sína..mamma….mamma…. Rósa Óskars sem var með okkur, sagði henni að steinhætta þessu… þú hefur þó mömmu þína hjá þér, en Sigga Hannesar var stýrimaður hjá okkur. 

Þetta var þó ekki eina sjóferðin mín, nokkrum sinnum fór ég með Willa afa á færi, og fannst alltaf gaman fyrst, en iðulega þurfti að fara með mig í land vegna sjóveiki. Ég er einnig svo fræg að hafa farið á Hrefnuveiðar, þegar ég var í tilhugalífinu með konna. Við fórum frá Árskógssandi um miðnætti og var mér sagt að fara í koju svo ég yrði síður sjóveik, sem og ég gerði. Ég vaknaði við það að skipstjórinn, kallaði á okkur að koma upp og halda í sporðinn á Hrefnunni meðan hann skyti hana. Ég þurrkaðist upp úr kojunni, og kallaði á strákana, en þeir hreyfðu sig ekki, vissu sem var að þannig veiðast ekki dýrin. Ég skammaðist mín svolítið lengi á eftir, að hafa ekki áttað mig strax á hvað þetta var vitlaust.   

Já…  mínar bestu, … og líka verstu.. minningar eru tengdar þessum degi Þær bestu úr barnæskunni, sem eru sveipaðar gleði, sól og hamingju. Það var kaldhæðni örlaganna að Pabbi minn, sem bjargaðist úr sjóslysi árið 1975, Þegar Kristbjörgin fórst, og  með henni mágur hans, Kristján Ásgeirsson skipstjóri, að hann pabbi og Gummi bróðir skildu látast í bílslysi kvöldið fyrir sjómannadag 4 árum síðar eða árið 1979… Það ár voru engin hátíðarhöld. 

Þó margt hafi breyst í gegnum árin í bænum okkar, félög og klúbbar lagt upp laupana eða lagst í dvala, getum verið mjög stolt af því, að hér í Ólafsfirði hefur sjómannadagurinn haldið sjarma sínum og hátíðleik í gegnum árin.  Hann er enn með sama hefðbundna sniðinu og þegar ég var að alast upp, en er orðin mun veglegri og meira í hann lagt en áður, þökk sé áhugasömum og duglegum sjómönnum. Þeir eru flestir hverjir þátttakendur á einn eða annan hátt, og leggja nótt við dag í að undirbúa helgina,  sem nú er orðin sannkölluð fjölskylduskemmtun, þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.

Í nágrannasveitarfélögum okkar eru hátíðarhöld nánast að leggjast af vegna þess að enginn fæst til að gera það sem gera þarf.

Sjómannadagurinn gegnir margvíslegu hlutverki í samfélaginu og á sér varla hliðstæðu í nokkru öðru þjóðfélagi. Því megum við aldrei gleyma að  þjóðfélag okkar sem nú á allra síðustu árum hefur tekið miklum breytingum, var byggt upp á einni atvinnugrein… sjávarútveginum,… enda eru sjómenn og úterðamenn  stoltir af starfi sínu, og mega svo sannarlega vera það.  Í öllu tali um stóriðjur, banka og hátækniðnað,  skulum við aldrei gleyma  því.

Árið 1939 efndi sjómannadagsráð til samkeppni um ljóð og lag fyrir sjómannadaginn. Magnús Stefánsson hlaut 1 verðlaun fyrir ljóð sitt Hrafnistumenn, við lag eftir Emil Thoroddsen. Þetta ljóð og lag er nú einkennissöngur sjómannadagsins.


Íslands Hrafnistumenn
lifðu tímamót tvenn
þó að töf yrði á framsóknarleið.
Eftir súðbyrðings för
kom hinn seglprúði knörr
eftir seglskipið vélknúin skeið.
En þótt tækjum sé breytt
þá er eðlið samt eitt
eins og ætlunarverkið er sjómannsins beið.

 

Ég óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn.    


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband