Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

Göngin inn...

Það var ekkert smá skemmtilegt í gær hjá okkur Guðnýju vinnu-vinkonu-frænku minni. Hún fékk boð um að koma og skoða og mynda í Héðinsfj.-göngunum, og tók mig með sem sérlegan aðstoðarmann sinn.Smile

Við vorum klæddar upp í stígvél nr 5o og fengum hjálma eyrnarhlífar og ljós og örkuðum svo á stað í fylgd Ivans, tékkneskur yfirmaður þarna. Þeir eru búnir að sprengja ca 550 m. Við fengum að fara upp í kranann og bora smá... fyrir einni dínamit-túbu. Guðný myndaði í gríð og erg og má sjá afraksturinn á síðunni hennar.Cool  Sniðugt að sjá hvernig þetta er framkvæmt...Við vorum svo vígalegar að það hefði verið hægt að villast á okkur og Valgerði Iðnaðar.. og Rönnku Rist.. Grin..ef ekki hefði verið fyrir stígvélin..Bandit Þau komu upp um okkur.

Hvað ætli séu mörg á síðan við nokkrir félagar frá Leikfélagi Ól. og Fílabenslarnir frá Sigló vorum með skemmtun á Broadway gamla, sem mig minnir að hafi kallast Göngin inn, til að láta vita af okkur og draumum okkar um göng milli staðanna...Woundering Fór að hugsa um þetta þegar ég var komin hálfan kílómetra inn í fjallið!!

Ætlaði í ræktina kl 6.45 í morgun en komst ekki undan sænginni.. enda 13 stiga frost. W00t

Það verður að bíða betri tíma. Konni minn landaði 7 tonnum í morgun, og er farinn aftur. Ég sé lítið af honum þessa dagana.

nóg um það.

 


Sigga bloggar!!!!

Já, það er ýmislegt sem manni dettur í hug. Ég. Sigga að blogga.. Smile tölvusnillingurinn, læri kannski eitthvað á þessu og æfist í að setja texta niður á blað (tölvu).

E.t.v. set ég inn myndir svo fólkið mitt geti fylgst með okkur Undecided og sjálfu sér. Annars hef ég verið að lesa töluvert af bloggi undanfarið, um skoðanir fólks á hinum og þessum dægurmálum og hugsaði að þetta gæti verið skemmtilegt að prófa. Af nógu er að taka og nóg um að tala á Íslandi í dag.

Ég hef haldið dagbók í mörg ár um veðrið, fiskiríið hjá Konna, og helstu atburði í lífi fjölskyldunnar, og það hefur ekki verið lognmollan í kringum okkur svo þið sem viljið vita hvað við erum að bardúsa, borða, hvenær við förum að sofa og í ræktina, fáið það beint í æð héðan af... ef ég nenni.Wink

Þar sem börnin eru öll flutt að heiman (allavega í bili) Sigurður Óli, Freydís Heba og Lena Margrét komin til Akureyrar, með kærustu og kærasta og börn. (Lena flytur reyndar reglulega að heiman og heim) geta þau njósnað um gamla settið hér á síðunni..he..he..

Nóg í bili 

 

 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband