31.3.2007 | 13:20
Dýrðardagur..
Þvílíkur dýrðardagur!! hitinn hér í firðinum fagra er komin upp í 15.2 gráður, sunnan gola og ég þarf að taka á honum stóra mínum til að rjúka ekki út í garð og hreinsa blómabeðin,, en ég veit af fyrri reynslu að það er ótímabært. Það á örugglega eftir að kólna og snjóa áður en vorið kemur fyrir alvöru. Svo ég ætla bara að tína rusl af lóðinni og sópa séttir í dag.
fór í ræktina og svo í pottinn í morgun, það var slatti af fólki og fullt af börnum, gaman að sjá hvað allt lifnar við þegar hlýnar.
Arnar hringdi í morgunn, þau voru á ströndinni og höfðu það gott. Hann sagði að mamma væri í skýjunum, þau eru að þvælast með hana um allt, og sagði að ef þau leyfðu henni að setjast niður...þá sofnaði hún... ég bað hann nú að klára hana ekki svo hún lægi ekki í rúminu þegar við mætum á svæðið.
Jæja, best að koma sér út í góða veðrið.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.